Svanhildur Dalla Ólafsdóttir, dóttir Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, og Matthías Sigurðarson, eiginmaður hennar, eignuðust son í vikunni. Fyrir eiga hjónin hina þriggja ára gömlu Urði. Forseti Íslands er ríkur maður ef tekið er mið af sístækkandi fjölskyldu hans. Guðrún Tinna, tvíburasystir Döllu, á tvö börn ásamt Karli Pétri Jónssyni, eiginmanni sínum. Þá á Þóra Þórarinsdóttir, stjúpdóttir Ólafs, þrjú börn.