Danski tónlistarmaðurinn Kim Larsen hélt uppi fjöri í Vodafone höllinni við Hlíðarenda í Reykjavík í kvöld ásamt hljómsveit sinni Kjukken.
Larsen nýtur mikilla vinsælda hér á landi eins og annarstaðar á Norðurlöndum og hefur hvarvetna verið aufúsugestur á tónlistarferð sem nú er að ljúka.