Britney vill stærri brjóst

Britney Spears á MTV-hátíðinni.
Britney Spears á MTV-hátíðinni. AP

Nú vill Britney fara í margskonar aðgerðir, þar á meðal brjóstastækkun og fitusog.

Vinur hennar sagði að hún væri þegar búin að ráðfæra sig við að minnsta kosti þrjá lækna um brjóstastækkun, nefaðgerð, fitusog af vanganum og bótox í andlitið.

„Hún sér enga ástæðu til annars en að drífa í þessu.“

Í síðasta mánuði talaði Britney við lýtalækni á stofu í Beverly Hills, en hann neitaði henni um aðgerði á þeim forsendum að hún væri „mjög áhættusamur sjúklingur.“

Mun læknirinn ekki hafa talið sig geta treyst því að Britney myndi greina satt og rétt frá öllu í sjúkrasögu sinni.

En Britney lét ekki við svo búið standa og hélt rakleitt á aðra læknastofu, þar sem læknir féllst á að sprauta kollageni í varirnar á henni til að reyna að fá hana ofan af því að fara í fleiri aðgerðir.

Fyrr í mánuðinum bárust af því fréttir að Britney ætlaði að eyða 100.000 dollurum í fegrunaraðgerðir til að reyna að endurheimta sínar frægu, stæltu línur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir