Leikarinn Brad Pitt hefur heitið því að striplast aldrei aftur fyrir framan kvikmyndavélarnar. Ástæðan er sú að hann vill ekki að börn sín fjögur þurfi að horfa upp á föður sinn nakinn á hvíta tjaldinu.
Þetta hljóta að vera slæmar fréttir fyrir þá kvenmenn jarðar sem hrifist hafa um árabil af vaxtarlagi leikarans, en þær ku vera nokkuð margar. Enn er þó hægt að leigja gamlar spólur með Pitt berum eða hálfberum, t.d. Troy og Fight Club.