Tónlistararmur Baggalúts segist hafa, í samvinnu við jólaskreytingarnefnd samsteypunnar, sent frá sér nýtt aðventulag, sem gildir fram til 1. sunnudags í aðventu 2008.
Lagið er gamall norður-amerískur húsgangur úr hugverkasmiðju hins mislynda frumkvöðuls Phils Spectors og heitir upp á íslensku Ég kemst í jólafíling.
Samkvæmt upplýsingum frá Baggalúti er lagið afar flókið í flutningi og því dugði ekkert minna en 30 manna stórsveit til að flytja herlegheitin, þar af tæpur tugur trommu- og slagverksleikara og fimm rafbassaleikarar. Tiltölulega auðvelt sé hins vegar að sækja lagið, nálgast textann og upplýsingar um flutninginn.