Á afþreyingarsíðunni Spinner.com má finna nýtt myndband Bjarkar Guðmundsdóttur við lagið „Declare Independence“ af plötunni Volta.
Myndbandinu leikstýrir franski leikstjórinn Michel Gondry en í því sést Björk predika yfir allsérstökum her sem ber bæði grænlenska og færeyska fánann á ermunum. Skilaboðin verða því ekki skýrari. Eða hvað?