Bandaríska sveitasöngkonan Dolly Parton hefur mikinn áhuga á því að fá Scarlett Johansson til þess að leika sig í kvikmynd sem hún vonar að verði gerð um ævi sína. Parton hefur staðið í viðræðum við þau Tom Cruise og Katie Holmes, en hún vill fá þau til að framleiða myndina.
„Dolly er mikill aðdáandi Scarlett og hún telur að hún sé fullkomin í hlutverkið,“ sagði vinur söngkonunnar í viðtali fyrir skömmu. „Hún er mjög spennt fyrir þessu verkefni og hún vill eingöngu fá besta fólk sem völ er á til þess að vinna það.“