Kvikmyndaleikarinn Jack Nicholson segir að karlar líkist meira hundum en konum þegar kemur að kynlífsupplifunum. Leikarinn sem er þekktur kvennamaður, segir karlmenn gleyma konum sem þeir hafi notið ásta með innan klukkutíma frá því þeir skilji við þær.
„Við eigum meira sameiginlegt með hundum en konum í þessum efnum,” segir Nicholson. „Það má vel vera að þetta sé karlremba en, elskan mín, þetta hefur allt verið vísindalega sannað."