Í fyrra kom út fjórblöðungurinn Nóttin er blá, Mamma fyrsta bindi í ævisögu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar sem sat í margar vikur í fyrsta sæti á metsölulistum. Annað bindið, Hólmsteinn – Holaðu mig, dropi, holaðu mig er uppselt hjá forleggjara vegna skorts á ljósritunarvél.
Upplagið er á þrotum og lýsir Nýhil forlagið eftir ljósritunarvél til að geta haldið útgáfunni áfram.
Útgáfan hefur brugðið á það ráð að leita að velunnara sem er tilbúinn að lána eða leyfa afnot af ljósritunarvél sinni til að prenta fleiri eintök.
Velunnurum verkefnisins er bent á að hringja í Óttar Martin Norðfjörð í síma 866-9276.