Britney að kikna undan streitu

Britney Spears er hún gekk með yngri son sinn.
Britney Spears er hún gekk með yngri son sinn.

Bandaríska söngkonan Britney Spears mætti ekki er forræðisdeila hennar og fyrrum eiginmanns hennar Kevin Federline var tekin  fyrir hjá dómara. Mark Vincent Kaplan, lögmaður Federline, segir hana hafa borið við kvíða og streitu en til hafði staðið að hún svaraði spurningum lögfræðinga Federline. 

„Ég var látinn vita að Britney Spears teldi sig ekki geta mætt af heilsufarsástæðum,” sagði Kaplan. „Hún á eftir að mæta síðar en ég útiloka ekki að við munum fara fram á ákveðinn sveigjanleika af hálfu réttarins á þeirri forsendu að hún hafi ekki mætt til formlegrar fyrirtöku málsins.” 

Sam Lufti, vinur og aðstoðarmaður Spears, segir umfjöllun um forræðisdeiluna, hafa valdið henni mikilli streitu. „Hún er bæði líkamlega veik og þjáist af mikilli streitu. Það eru milljónir manna að fylgjast með henni. Það er henni einfaldlega ofviða," segir hann.

Federline fer nú með forræði sona þeirra Sean Preston, tveggja ára, og Jayden James, fimmtán mánaða og fær hann 15.000 Bandaríkjadollara á mánuði frá henni í meðlög á mánuði.
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Að afla sér tekna merkir líklega að maður þurfi að leggja á sig það sama og margir aðrir, en með sínum einstaka hætti. Peningamálin ættu að komast í eðlilegt horf á næstunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnar Jónasson
2
Harry Whittaker og Lucinda Riley
3
Jojo Moyes
4
Sólveig Pálsdóttir
5
Carin Gerhardsen
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Að afla sér tekna merkir líklega að maður þurfi að leggja á sig það sama og margir aðrir, en með sínum einstaka hætti. Peningamálin ættu að komast í eðlilegt horf á næstunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnar Jónasson
2
Harry Whittaker og Lucinda Riley
3
Jojo Moyes
4
Sólveig Pálsdóttir
5
Carin Gerhardsen