Davíð Beckham er búinn að kaupa bók sem hann ætlar að gefa Viktoríu konu sinni í jólagjöf. Kostaði bókin sem svarar tæplega 100.000 krónum, en hún er um einn uppáhalds hönnuð Viktoríu, Valentino, og árituð af honum.
Einungis voru gefin út 2.000 eintök af bókinni sem heitir Valentino Garvani: First Name in Fashion. Hvert eintak er kassa með rauðu silki sem Valentino hannaði. Í bókinni eru myndir frá ferli hans og tilvitnanir í helstu tískublaðamenn heimsins.
Haft er eftir heimildamanni: „Þetta verður fín bók til að hafa á salerninu. Flestir myndu kannski fá garðyrkjubók í pakkann sinn, en þetta fær Posh.“