Poppsöngkonan Lily Allen á von á sínu fyrsta barni með kærasta sínum, Ed Simons úr Chemical Brothers dúettnum.
Talsmaður söngkonunnar segir „þau auðvitað bæði mjög spennt vegna fréttanna, og biður fjölmiðla að virða næði hennar þar sem heilsa hennar og barnsins er í húfi,” en söngkonan sem er 22, sagði nýlega frá því að hún hafi greinst með hjartatruflanir.
Söngkonan mun gefa út sína aðra plötu 2008, en hún gaf út plötuna Alright árið 2006.