Tveir þekktir rithöfundar mættust í fyrsta sinn í dag en höfundurinn Gils N. Eggerz heimsótti líkamsræktarkappann og rithöfundinn Gillzenegger í dag og gaf honum fyrsta kassann af nýju upplagi bókarinnar Biblíu gáfaða fólksins.
Þrátt fyrir að Gils og Gilz, sem á síðasta ári gaf út bókina Biblía fallega fólksins, virðist ólíkir og hafi ef til vill ekki sömu lífsspeki að leiðarljósi þá virtist fara vel á með þeim við þennan fyrsta fund og tókust þeir í hendur.
Í tilkynningu frá Gils Nirði Eggerz segir að hann hafi fyrirgefið Gillzenegger nafnastuldinn og að þeir kumpánar séu enda sammála um eitt, að nafnið sé þrælgott.