Leikkonan Jessica Alba, sem á von á barni með vorinu, hefur verið beðin um það af fjölda tímarita að sitja fyrir nakin.
Leikkonan, sem þekktust er fyrir leik sinn í myndunum um „Hin fjögur fræknu",átti þar að feta í fótspor Demi Moore og Britney Spears. Hinsvegar hefur Alba lítinn áhuga á koma nakin fram enda telur hún meðgönguna vera einkamál sitt og barnsföður, Cash Warren.