Eiríkur Hauksson tekur við af Allan Olsen sem söngvari norsku rokkhljómsveitarinnar Magic Pie. Í fréttatilkynningu frá sveitinni segir að Eiríkur muni áfram vera meðlimur Live-Fire og í nýrri sveit sem hann er að stofna með Trond Holter úr Wig-Wam.
Eiríkur segist reikna með að næsta ár verði hann mjög upptekinn enda nóg fyrir hann að gera í öllum þessum hljómsveitum.
Hann mun taka til við að semja lög með Gilbert í Magic Pie.