Leikstjórinn Quentin Tarantino ætlar að djamma á Rex fyrstu tíma ársins 2008, að lokinni flugeldaskothríð, með góðvinum sínum Eli Roth og Eyþóri Gunnarssyni. Eyþór segir þá félaga njóta lífsins í ystu æsar í borginni og hafi kosið að gefa engin viðtöl. Tarantino hefur þó veitt eiginhandaráritanir og setið fyrir á ljósmyndum fyrir aðdáendur, m.a. í fyrradag á veitingastaðnum Caruso. Þá hefur Tarantino notið sín í Laugum í einkaþjálfun og heilsulindum.