Aldurskomplexar eru farnir að hrjá leikarann Brad Pitt, en hann varð 44 ára á dögunum. „Ég vinn við það að líta vel út,“ lét leikarinn hafa eftir sér, en baráttan við að halda útlitinu við verður strangari með hverju árinu. Pitt brást úrillur við afmæliskveðjum systur sinnar og bað kærustuna sína, Angelinu Jolie, að kaupa ekki köku í tilefni dagsins.
Samkvæmt ónefndum heimildamanni kunni hann þó vel að meta afmælisgjöfina frá Jolie því hún gaf honum mótorhjól. Hann mun fara út á því á hverjum degi til þess að reyna að endurupplifa þá tíma þegar hann var ungur og uppreisnargjarn.