Björk Guðmundsdóttir var í fréttunum í dag í tveimur heimsálfum, fyrst fyrir að lúskra á ljósmyndara í Nýja-Sjálandi og síðan fyrir að tilnefningu til svonefndra Brit tónlistarverðlauna í Bretlandi sem besta alþjóðlega popptónlistarkonan.
Ásamt Björk eru þær Rihanna, Kylie Minogue, Feist og Alicia Keys tilnefnd til Brit-verðlaunanna sem besta alþjóðlega tónlistarstjarnan.
Breska hljómsveitin Take That, sem birtist aftur á breskum vinsældarlistum á síðasta ári, tónlistarmaðurinn Mika og Leona Lewis voru öll tilnefnd til fernra verðlauna. Verðlaunin verða afhent 20. febrúar.
Paul McCartney verður heiðraður sérstaklega á hátíðinni fyrir framlag sitt til breskrar popptónlistar.
Tilnefningar til Brit-verðlauna