Paul McCartney keypti afmælisgjafir handa eiginkonunni fyrrverandi, Heather Mills, fyrir átta þúsund pund, eina milljón króna. Mills varð fertug á laugardaginn var. Meðal þess sem McCartney keypti var Cartier úr og gjafakort í versluninni Harvey Nichols upp á fimm þúsund pund.
Á McCartney að hafa sent henni handritað afmæliskort þar sem stóð „Njóttu dagsins þrátt fyrir allt sem gerst hefur. Vona að við getum verið vinir Px"
Eins og margoft hefur komið fram í fjölmiðlum hafa hjónin fyrrverandi átt í harkalegum deilum eftir að þau ákváðu að binda endi á hjónaband sitt. Saman eiga þau dótturina Beatrice sem er fjögurra ára.
Þrátt fyrir þessa sáttatilraun Bítilsins á Mills að hafa ráðið einkaspæjara til þess að fylgjast með eiginmanninum fyrrverandi. Á hann að reyna að ná mynd af McCartney drukknum til þess að auka líkur á að Mills fái fullt forræði yfir dótturinni.