Ekki ólétt heldur gráðug

Eva Longoria Parker.
Eva Longoria Parker. AP

Leikkonan Eva Longoria, sem leikur eitt aðalhlutverkið í Aðþrengdum eiginkonum, neitar sögusögnum um að hún eigi von á barni heldur sé hún gráðug. Hlé er á tökum á þáttaröðinni nú vegna verkfalls handritshöfunda í Hollywood.

Segist leikkonan ekki vera með barni að minnsta kosti ekki enn en hún eldi og borði til skiptis þessa dagana. Segist hún hafa bætt á sig nokkrum kílóum en það skýrist af ofáti í verkfallinu.

Eva Longoria og Tony Parker gengu í hjónaband í París síðasta sumar og hafa þau bæði lýst því yfir að þau langi til þess að eignast börn.

Ekki dró úr kjaftasögum um meinta óléttu Longoriu þegar hún mætti nýverið á blaðamannafund íklædd bleiku barnateppi. Segir hún að henni hafi einfaldlega verið kalt og því vafið teppi um sig. En viðurkennir að þetta hafi ekki bætt úr skák hvað varðar orðróminn um meinta óléttu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir miklar kröfur til sjálfs þín og annarra og setur sjálfum þér oft ströng skilyrði. Þú þrífst af skoðanaskiptum við starfsfélaga þína og leggur um leið þitt til þeirra mála.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnar Jónasson
2
Harry Whittaker og Lucinda Riley
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Carin Gerhardsen
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir miklar kröfur til sjálfs þín og annarra og setur sjálfum þér oft ströng skilyrði. Þú þrífst af skoðanaskiptum við starfsfélaga þína og leggur um leið þitt til þeirra mála.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnar Jónasson
2
Harry Whittaker og Lucinda Riley
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Carin Gerhardsen