Dánarorsök bandaríska tónlistarmannsins Ike Turners, sem lést í desember 76 ára að aldri, var ofneysla kókaíns. Þetta var niðurstaða réttarlæknisembættis San Diego sýslu í Kalíforníu. Turner var um tíma giftur söngkonunni Tinu Turner og saman náðu þau heimsfrægð.
Paul Parker, yfirréttarlæknir, segir að í ljós komi að Turner hafi misnotað kókaín og það hafi leitt til kókaíneitrunar. Hann þjáðist einnig af hjártasjúkdómum og fleiri kvillum.
Vitað var að Turner neytti fíkniefna um árabil. Hann sagði eitt sin í viðtali að hann hefði byrjað að neyta fíkniefna til að geta haldið sér vakandi á erfiðum tónlistarferðum.