Um 5000 manns horfðu um helgina á kvikmynd Baltasars Kormáks og hafa þá alls 6500 manns séð myndina, sem fór í efsta sætið á íslenska tekjulistanum.
Myndin byggir á leikritinu Ívanov eftir Anton Tsjekhov og vann sami leikhópur að myndinni og sýningu Þjóðleikhússins á verkinu.