Yfir 40 hljómsveitir hafa þegar skráð sig á rokkhátíðina Aldrei fór ég suður sem haldin verður á Ísafirði um páskana; nokkuð sem ætti að gleðja Mugison og aðra aðstandendur hátíðarinnar.
Skipuð hefur verið þriggja manna uppstillingarnefnd sem ákveður hverjum verður boðið á hátíðina í ár. Síðasti skiladagur umsókna er föstudagurinn 15. febrúar.
Skráning fer fram á síðunni www.aldrei.is.