Söngvari Led Zeppelin, Robert Plant, kallaði hljómsveitina Radiohead rusl þar sem hann sat við drykkju í Norður-Lundúnum um helgina. Það er breska blaðið The Sun sem greinir frá.
Samkvæmt heimildum The Sun sátu Plant og vinkona hans að sumbli, og heimtaði söngvarinn að slökkt yrði á tónlist Radiohead sem var í gangi á barnum. Hann sagði Radiohead vera rusl og kallaði tónlistina leikskólalög.