Hótar að sniðganga Óskarsverðlaunahátíðina

Leikarinn Viggo Mortensen hótar því að sniðganga Óskarsverðlaunahátíðina í næsta mánuði verði ekki búið að leysa verkfall handritshöfunda. Mortensen er tilnefndur fyrir leik sinn í kvikmyndinni Eastern Promises.

Að sögn Mortensen mun hann ekki mæta ef verkfallið verður enn óleyst. Hann segist hins vegar ekki trúa öðru en samningar náist fyrir þann tíma. 

Auk Mortensen eru þeir George Clooney, Daniel Day-Lewis, Tommy Lee Jones og Johnny Depp tilnefndir til Óskarsverðlauna fyrir leik í aðalhlutverki karla.

Óskarsverðlaunin verða afhent þann 24. febrúar nk.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir