Hörðustu rokkurunum fannst sumum lítið leggjast fyrir kappann Lou Reed sem eitt sinn söng: Take a walk on the wild side, þegar hann söng nýverið einkatónleika fyrir hóp bankastjóra og fyrirmenna úr fjármálalífinu í Parísarborg. Um 500 manns sóttu tónleikana, en þeir voru haldnir í des Champs Elysées-leikhúsinu á Avenue Montaigne, þar sem flottustu búðir bæjarins eru.
Lou Reed sem nú er 65 ára glataði þó „kúlinu“ ekki algjörlega, og þegar franskir fjölmiðlar spurðu hann hvað þetta ætti að þýða, sagði hann einfaldlega: „I love Paris“ eða Ég elska París. Lou Reed var einn af meðlimum hljómsveitarinnar Velvet Underground.