Björk Guðmundsdóttir mun koma fram á tónleikum í Melbourne í Ástralíu á mánudag en hún aflýsti tónleikum í Sydney í kvöld samkvæmt læknisráði vegna bólgu í raddböndum.
Björk mun koma fram á tónleikaröð, sem nefnd er Big Day Out, ásamt bandarísku rokkurunum Rage Against The Machine.