Dr. Phil segist sjá eftir því að hafa talað um geðheilsu Britney Spears í sjónvarpsþætti sínum. Hann neitar að hafa brugðist trausti fjölskyldu hennar. „Ég sé eftir ummælum mínum Þau hjálpuðu ekki og virkuðu ekki," sagði Dr. Phil á spjallþættinum Good Morning America.
Dr. Phil segist hafa heimsótt Britney á sjúkrahúsið sem fjölskylduvinur og hafnar gagnrýni um að hann hafi farið sem sálfræðingur án leyfis.
„Ég fór ekki þangað til þess að greina hana. Ég fór ekki til þess að meðhöndla ástand hennar," sagði Phil. Hann heimsótti Britney á sjúkrahúsið eftir að hún var lögð þar inn þegar hún neitaði að láta syni sína tvo af hendi til föður þeirra.
„Ætlun mín var að koma í veg fyrir sögusagnir og rangar upplýsingar," sagði Dr. Phil.
Spears fjölskyldan hefur ásakað Dr. Phil um að svíkja traust þeirra með því að gefa út opinbera yfirlýsingu um sjúkrahúsvistun söngkonunnar. Dr. Phil hafði sagt í viðtölum að Britney þyrfti á sálfræðilegri hjálp að halda.