Johnny Rotten, fyrrum söngvari pönksveitarinnar Sex Pistols, kennir stjúpmóður sinni, Mary Irwin, um andlát föður síns, John. Faðir hans lést föstudaginn síðastliðinn. Rotten, réttu föðurnafni Lydon, ætlar að sjá til þess að Irwin fái engu ráðið um útförina.
Faðir Lydon lést af völdum hjartaáfalls í kjölfar rifrildis við son Irwin, Gary. Irwin segir Lydon hafa hringt í lögregluna og beðið um að Gary yrði fjarlægður en hann bjó hjá móður sinni. Lydon heldur því fram að faðir hans hafi verið við góða heilsu en Irwin segir hann hafa verið hjartveikan.