Leikarinn Ethan Hawke og fyrrum barnfóstra barna hans og fyrrum eiginkonu Umu Thurman, Ryan Shawhughes, eiga von á barni saman.
Shawhughes og Hawke eiga að vera alsæl með tíðindin en hann á tvö börn með Thurman.
Sagan hermir að Hawke og Shawhughes hafi byrjað saman árið 2005, ári eftir að hann og Thurman skildu. Á barnfóstran að hafa haft samband við leikarann og sagt honum heitar tilfinningar hennar til hans. Frá því hafa þau verið saman og þrátt fyrir að hafa farið leynt með sambandið í upphafi þá er það breytt nú.