Í ljós hefur komið myndband sem sýnir Heath Ledger, sem lést nýverið, neyta kókaíns. Er myndbandið tekið á SAG kvikmyndahátíðinni (Screen Actor’s Guild)þann 29. janúar 2006.
Keppast bandarískar sjónvarpsstöðvar um að fá myndbandið keypt til birtingar og hafa þættirnir Entertainment Tonight og The Insider boðist til þess að greiða 200 þúsund dali fyrir myndbandið.Engin ákvörðun hefur hins vegar verið tekin um hvort það verði sýnt að teknu tilliti til fjölskyldu leikarans.
Heath vissi ekki af upptökunni þar sem hann sést á Chateau Marmont hótelinu sjúga kókaín upp í nefið. Í myndbandinu talar leikarinn um fyrrum unnustu sína, Michelle Williams og dóttur þeirra Mathildu. Hann játar jafnframt í myndbandinu notkun á kannabisefnum og segist hafa notað þau daglega.