ClubVOICE er heiti nýrrar útvarpsstöðvar á Akureyri. Hún er þó ekki send út þráðlaust heldur er hún aðeins send út á netinu. Einungis verður leikin danstónlist á stöðinni og segja aðstandendur hennar að vantað hafi útvarpsstöð sem spili einungis þá tegund tónlistar.
Útvarpsstöðin er hliðarverkefni útvarpsstöðvarinnar VOICE 987, sem hefur verið í gangi á Akureyri á annað ár. Segir Árni Már Valmundarson, dagskrárstjóri VOICE 987, í tilkynningu, að það eina sem þarf að hafa sé nettenging og tölva og þá sé hægt að hlusta hvar sem viðkomandi er staddur í heiminum.
Einnig er hægt að hlusta á VOICE 987 á netinu, í bestu mögulegu gæðum, allan sólarhringinn. Hægt er að hlusta á báðar stöðvarnar á www.voice.is. ClubVOICE fer í loftið í kvöld klukkan 18.