Viktoría Beckham hefur farið að fordæmi manns síns Davíðs og fengið sér nýtt tattú. Skartaði hún því þegar hún kynnti nýja gallabuxnalínu sína í verslun Saks Fifth Avenue í Boson fyrir helgina og sat fyrir hjá ljósmyndurum.
Á hægri úlnlið hennar eru nú áberandi stafir sem þó er erfitt er að lesa í undir eldra húðflúri. Á vinstri úlnliðinn var hún þegar búin að láta flúra fangamark Davíðs, og á mjóbakinu er hún með fimm stjörnur sem tákna hana sjálfa, eiginmann hennar og syni þeirra þrjá. Einnig er hún með tattú aftan á hálsinum, en þar eru rómantísk orð um Davíð á hebresku.
Davíð sýndi nýja tattúið sitt fyrr í vikunni - nektarmynd af Viktoríu, sem hann ber á vinstri handleggnum.