Tímaritið Vanity Fair ætlar ekki að halda sitt árlega Óskarsverðlaunateiti í ár. Með þessu vill tímaritið sýna stuðning við handritshöfunda í Hollywodd sem eru í verkfalli.
Segir á vef tímaritsins að það hafi tekið þá ákvörðun að vandlega íhuguðu máli að hætta við teitið í Los Angeles þann 24. febrúar næstkomandi en um leið boðar Vanity Fair að teitið verði á sínum stað að ári.