París Hilton lýsti því yfir að Harvardháskóli væri „heitur“ er hún tók við nafnbótinni „Kona ársins“ frá tímaritinu Harvard Lampoon í gær. Hundruð æpandi aðdáenda Parísar fögnuðu henni á tröppum Lampoon-kastala í Cambridge í Massachusetts.
„Mig hefði aldrei órað fyrir því að ég ætti eftir að standa hér, á tröppum Harvard Lampoon. Þetta er virkilega spennandi og ég hef skemmt mér konunglega ... Harvard er heitur!“ sagði París.
Fulltrúi Lampoon sagði um valið á Parísi að það hefði í rauninni verið einfalt, þegar tillit væri tekið til þess „hver hefur haft mest áhrif á líf okkar allra.“
Með útnefningu sinni á konu ársins gerir tímaritið grín að útnefningu leiklistarfélags háskólans á konu og manni ársins. Charlize Theron hefur orðið fyrir valinu að þessu sinni, og átti að taka við útnefningunni í dag, og Christopher Walken hefur verið valinn maður ársins.