Íþróttaálfurinn ekki í Íhaldsflokknum

Íþróttaálfurinn er ekki í breska Íhaldsflokknum.
Íþróttaálfurinn er ekki í breska Íhaldsflokknum.

Breska blaðið Daily Mirror segir í dag, að framleiðendur Latabæjarþáttanna séu ekki ánægðir með þá yfirlýsingu breska Íhaldsflokksins um að Íþróttaálfurinn verði tákn herferðar flokksins gegn offitu barna.

Blaðið hefur komist yfir bréf, sem forsvarsmenn Latabæjar hafi sent og þar segi, að Latibær hafi ekki samþykkt neina samvinnu við Íhaldsflokkinn.

Daily Mirror hefur eftir heimildarmanni í Verkamannaflokknum, að David Cameron, leiðtogi Íhaldsflokksins, sé orðinn að Glanna glæp stjórnmálanna. Það sé undirförult bragð, að nota ofurhetju sem börnin dá til að skora pólitísk mörk. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert að uppgötva nýja hluti og þarft að gefa þér tíma til að njóta þeirra sem best þú getur. Þú átt á hættu að vera misskilinn.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar