Hraðstefnumót þar sem auðugar konur fá tækifæri til að kynnast sætum, ungum mönnum nýtur miklla vinsælda í New York um þessar mundir.
Fimm þúsund karlmenn sóttu um þátttöku í hraðstefnumótinu, þar sem þeim gefst færi á að kynnast konum sem eru með yfir hálfa milljón dollara í árstekjur, eða sem svarar tæpum 34 milljónum króna, og eiga eignir að verðmæti að minnsta kosti fjórar milljónir dollara (270 milljónir króna).
Einungis tuttugu strákar fengu að fara á stefnumótið.