Samtök handritshöfunda í Bandaríkjunum hafa staðfest að 92,5% meðlima styðji nýtt samkomulag þar sem segir að höfundar skuli fá hlut af greiðslum fyrir efni sem birtist á netinu og í öðrum nýjum miðlum og vilja þeir snúa aftur til starfa hið fyrsta.
Verkfallið stóð í 14 vikur og varð til þess að raska kvikmyndaframleiðslu í Hollywood og framleiðslu sjónvarpsþátta vestan um haf og breytti afhendingu Golden Globe verðlaunanna úr stjörnuprýddri skrautsýningu í stuttan blaðamannafund.
Samkvæmt fréttavef Sky fréttastofunnar er Óskarsverðlaunaafhendingunni borgið en hún mun fara fram 24. febrúar eins og áætlað var.
Höfundar sem vinna við gerð Óskarsverðlaunaafhendingarinnar hafa nú einungis 11 daga til að skila af sér handritum sem venjulega tekur margar vikur að framleiða.