„Britney vill ekki fá börnin aftur“

Britney Spears með yngri syni sínum Jayden James.
Britney Spears með yngri syni sínum Jayden James. AP

Ef marka má yfirlýsingar Jasons Alexanders, fyrrverandi eiginmanns og æskuvinar söngkonunnar Britney Spears, mun hún að líkindum gefa eftir í forræðisdeilunni við Kevin Federline. Þetta kunngjörði Jason í viðtali við tímaritið In Touch Weekly, auk þess að opinbera ýmsa hluti varðandi fyrrverandi eiginkonu sína, sem hann var eingöngu giftur í 55 klukkustundir.

Í viðtalinu segir Jason að Britney geri sér grein fyrir veikleikum sínum sem móður og að synirnir Sean Preston og Jayden James komi ekki aftur.

„Hún vill sjá þá en hún vill ekki vera móðir allan sólarhringinn. Hún sagði mér að það skipti ekki máli þó að hún fengi ekki fullt forræði og að hún gæti eignast ný börn í framtíðinni,“ sagði Jason, en hann mun hafa fengið símtal frá stjörnunni á dögunum.

„Hún hringdi í mig nýlega og við höfum verið að tala saman síðan,“ sagði hann í viðtalinu. Hann kveðst þess fullviss að Britney sakni barna sinna en telur þó ekki rétt að hún taki þau aftur.

„Hún þarf að einbeita sér að sjálfri sér og getur því ekki haft fullt forræði.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ekki afsala þér öllu í dag og ekki búast við of miklu frá öðrum. Líttu í spegil og segðu sjálfum þér að þú sért frábær.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Carla Kovach
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ekki afsala þér öllu í dag og ekki búast við of miklu frá öðrum. Líttu í spegil og segðu sjálfum þér að þú sért frábær.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Carla Kovach