Söngkonan Madonna segir að sig dreymi um að gerast sígauni. „Ég er mjög hrifin af þeirri hugmynd að ferðast út um allt, spila tónlist og hafa ekki hugmynd um hvað framtíðin ber í skauti sér,“ sagði Madonna í kjölfarið á frumsýningu Filth and Wisdom, fyrstu kvikmyndarinnar sem hún leikstýrir.
Aðalleikari myndarinnar, Eugene Hutz, mun vera söngvari sígaunasveitarinnar Gogol Bordello, og hafði hann greinilega mikil áhrif á söngkonuna frægu.