Kínverskur fjöllistahópur, sem skipaður er heyrnarlausum ungmennum, hefur vakið talsverða athygli í heimalandi sínu og víðar enda eru sýningar flokksins nokkuð óvenjulegar. Hópurinn vonast til þess, að fá að taka þátt í opnunarhátíð ólympíumóts fatlaðra, sem haldið verður í Beijing síðar á árinu.