Söngkonan Christina Aguilera er alsæl með hvað brjóst hennar hafa stækkað eftir að hún eignaðist soninn Max í síðasta mánuði. Á sama tíma er hún miður sín yfir því hversu mörgum kílóum hún bætti á sig á meðgöngunni.
Söngkonan er í sjöunda himni yfir litla drengnum og segist ekki geta hætt að horfa á hann aðdáunaraugum. „Að sjá afurð ástar tveggja einstaklinga er stórkostlegt. Ég og eiginmaður minn getum ekki hætt að horfa á hann."
En á sama tíma viðurkennir hún að það sé erfitt að vera jafn bundin heima eins og hún er þessa dagana. Í viðtali við Ellen DeGeneres í spjallþætti á dögunum sagði hún að hún komist lítið út þessa dagana en það muni breytast fljótlega.