Tryggir sér réttinn á Blues Brothers

Dan Aykroyd og John Belushi í hlutverkum Blúsbræðra.
Dan Aykroyd og John Belushi í hlutverkum Blúsbræðra.

„Ég er kominn með réttinn á Blues Brothers ásamt félaga mínum í Bretlandi,“ segir athafnamaðurinn Óskar Eiríksson.

24 stundir sögðu nýverið frá ævintýrum Óskars í Hollywood þar sem hann setur nú upp sýninguna Sexy Laundry. Nú hefur Óskar tryggt sér réttinn á leikritinu um blúsbræðurna sem Dan Aykroyd og John Belushi gerðu ódauðlega snemma á níunda áratugnum. Belushi lést árið 1982, en Akroyd og ekkja Belushi framseldu réttinn á Blues Brothers-nafninu til Óskars fyrir öll markaðssvæði heims nema Ameríku.

Á Íslandi í sumar?

Óskar segist ætla að reyna að setja upp leikritið Blues Brothers á Íslandi í sumar og er þessa dagana í viðræðum við aðila hér á landi um framkvæmdina. „Svo verður farið til Þýskalands og haldið áfram út um alla Evrópu með þetta,“ segir Óskar.

atli@24stundir.is

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar