Mikill spenningur ríkir á Hollywood í dag en undirbúningur stendur nú yfir í Los Angeles fyrir afhendingu Óskarsverðlaunanna í nótt. Verðlaunin verða nú afhend í áttugasta sinn en á tímabili var útlitið svart fyrir skipuleggjendur hátíðarinnar vegna verkfalls handritshöfunda.
Spáð er úrhelli í Kaliforníu í nótt en skipuleggjendur eru samt sem áður bjartsýnir vegna verðlaunahátíðarinnar sem er af flestum talin stærsta kvöldið í Hollywood.