Nú þegar hafa verið seldir 10 þúsund miðar á sýningu Leikfélags Akureyrar á Fló á skinni sem frumsýnd var fyrir rúmum hálfum mánuði og því ljóst að áhorfendamet félagsins á eitt verk verður slegið enn og aftur. Heildarfjöldi áhorfenda verður líka meiri en nokkru sinni áður; í fyrravetur komu 27.000 á sýningar LA á Akureyri – sem var met – en áhorfendur verða líklega um 40.000 í vetur.