Breska ofurfyrirsætan Naomi Campell hefur verið flutt á sjúkrahús í Sao Paulo í Brasilíu með sýkingu. Samkvæmt upplýsingum frá sjúkrahúsinu annast helstu sýkingarsérfræðingar landsins fyrirsætuna.
Campell var flutt á sjúkrahúsið sl. sunnudag. Hún ferðast reglulega til Brasilíu, en hún tók m.a. þátt í kjötkveðjuhátíðinni sem fram fór í borginni Salvador fyrr í þessum mánuði.