Unnusta leikarans Orlando Bloom þjáist vegna skorts hans á hreinlæti. Fyrirsætan Miranda Kerr hefur, eftir því sem tímaritið Star segir frá, þurft að biðja hann að fara oftar í sturtu og þvo illa þefjandi fötin sín stöku sinnum.
Heimildarmaður tímaritsins segir Bloom ekki þvo af sér svo dögum skipti þegar hann er ekki að vinna. „Hann gengur í sama bolnum og sömu sokkunum í viku áður en hann setur í vél. Það bætir ekki úr skák að hundurinn hans sefur uppi í rúmi hjá honum og slefar á hann allar nætur.“