Playboy hefur áhuga á Lohan

Lindsay Lohan á mynd sem Bert Stern tók fyrir New …
Lindsay Lohan á mynd sem Bert Stern tók fyrir New York tímaritið Bert Stern for New York Magazine

Hugh Hefner á vera svo hrifin af mynd sem birtist af Lindsay Lohan nýverið þar sem hún fetaði í fótspor Marilyn Monroe, að hann hefur boðið Lohan að sitja fyrir nakin á mynd fyrir Playboy tímaritið.

Hefner hefur áhuga á að birta mynd af Lohan þar sem hún syndir nakin líkt og Monroy gerði í kvikmyndinni Something's Got To Give. En gerð kvikmyndarinnar var aldrei lokið vegna fráfalls leikkonunnar.

Heimildir nákomnar Lohan herma að hún sé alsæl með þau viðbrögð sem myndir sem birtust í New York tímaritinu fengu og því íhugi hún að verða við beiðni eiganda Playboy.

Lindsay Lohan skrýddist ljósri hárkollu og fáu öðru er hún sat fyrir á mynd sem minnir á fræga ljósmynd sem tekin var af Marilyn Monroe skömmu áður en hún lést. Og ljósmyndarinn var sá sami. Ljósmyndarinn, Bert Stern, tók frægar myndir af Monroe fáklæddri fyrir tímaritið Vogue 1962 á Bel-Air hótelinu í Kaliforníu.

Lohan hefur átt erfitt uppdráttar að undanförnu, eftir að hafa farið nokkrum sinnum í áfengis- og fíkniefnameðferð og verið handtekin fyrir ölvunarakstur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gerðu ekki meiri kröfur til sjálfs þín en þú ert fær um að standast. Reyndu að semja við alla sem þú hittir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Kathryn Hughes
3
Steindór Ívarsson
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Carla Kovach
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gerðu ekki meiri kröfur til sjálfs þín en þú ert fær um að standast. Reyndu að semja við alla sem þú hittir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Kathryn Hughes
3
Steindór Ívarsson
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Carla Kovach