Söngkonan Jennifer Lopez og eiginmaður hennar Marc Anthony hafa gefið hinum nýfæddu tvíburum sínum nöfnin Max og Emme. Umboðsmaður Lopez, Simon Fields staðfesti nöfnin í viðtali við People Magazine í gær.
Tvíburarnir fæddust 22. febrúar á sjúkrahúsi á Long Island. Emma mun hafa fæðst 15 mínútum á undan bróður sínum.
Þetta eru fyrstu börnin sem Lopez sem er 39 ára eignast en Anthony á þrjú börn fyrir. Hjónin giftu sig 2004.
Börnin fæddust daginn eftir að bæði Lopez og Anthony hlutu sín hvor verðlaunin á Suður-Amerísku verðlaunahátíðinni Premio Lo Nuestro.
Lopez sem besti sóló poppsöngvarinn og Anthony sem besti salsa-listamaður ársins.