Bannað að vera með belti

Tobey Maguire
Tobey Maguire Reuters

Leikarinn Tobey Maguire, sem er þekktastur fyrir að leika Kóngulóarmanninn, tekur það mjög alvarlega að vera dýravinur og grænmetisæta. Hann hefur nú ákveðið að hafa ekkert leður á heimilinu og sú regla er ekki bundin við eigur hans, heldur þurfa gestir að losa sig við alla fylgihluti úr leðri áður en þeir fá inngöngu í húsið. „Ég hef séð konur fara úr skónum, taka af sér belti og skilja rándýrar handtöskur eftir við dyrnar,“ sagði ónefndur heimildamaður sem kom nýlega á heimili Maguire í Los Angeles. „Tobey segir að honum verði óglatt af lytkinni af leðri og vilji ekki hafa það neins staðar nálægt sér.“

Tobey Maguire sagði nýlega frá því í viðtali að honum hefði reynst auðvelt að gerast grænmetisæta og hætta að borða allar dýraafurðir á borð við egg og mjólk.

„Mér hefur aldrei þótt sérstaklega gott að borða kjöt og þegar ég var krakki átti ég sérstaklega erfitt með það. Til þess að ég kæmi því niður þurfti ég að fá bita sem var alveg fullkominn, ekki með neinum tægjum eða fitu. Ég dæmi ekki fólk sem borðar kjöt, það er ekki mitt að gera það en mér finnst það hálffúlt.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Leyfðu öðrum að njóta kunnáttu þinnar en varastu allt oflæti, því fyrr en varir ert þú sá sem lærir af öðrum. Ekki hafa áhyggjur af því að þurfa að sanna þig.
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Leyfðu öðrum að njóta kunnáttu þinnar en varastu allt oflæti, því fyrr en varir ert þú sá sem lærir af öðrum. Ekki hafa áhyggjur af því að þurfa að sanna þig.